Munu ekki samþykkja skerta getu Gæslunnar

Þyrlur flytja slasaða í Borgarspítala.
Þyrlur flytja slasaða í Borgarspítala. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta er í raun afleiðing þess að hluti fjárveitinga til Landhelgisgæslu Íslands er gengistryggður, en þannig hefur það verið í mörg ár og er það gert að ósk Landhelgisgæslunnar sjálfrar.“

Þetta segir Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra í Morgunblaðinu í dag, en greint var frá því á laugardag að þyrlan TF-SYN yrði hugsanlega leigð í verkefni erlendis í að minnsta kosti tvo mánuði til að loka gati sem myndaðist við „lækkun“ fjárheimilda til Landhelgisgæslunnar í fyrra.

Sigríður segir þetta ekki hafa átt að koma Landhelgisgæslunni á óvart og þar á bæ hefðu menn mátt vita í hvað stefndi, en vegna gengisbreytinga lækkaði framlag til þeirra um 61,4 milljónir króna. „Landhelgisgæslunni mátti vera það ljóst, þekkjandi sitt bókhald og stöðu gengismála,“ segir hún. Þá segir hún ekki koma til greina að leigja út björgunarþyrlu á sama tíma og önnur er í viðgerð.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert