„Við eigum að finna til ábyrgðar“

Dagur B. Eggertsson segir það hafa verið honum áfall að …
Dagur B. Eggertsson segir það hafa verið honum áfall að lesa frásagnir íþróttakvenna af kynferðisofbeldi. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir alla iðkendur íþrótta, foreldra þeirra, forráðamenn og alla þá sem koma að íþróttastarfi verða að geta treyst því að það sé öruggur vettvangur og að tekið sé á málum sem þar koma upp af fagmennsku og festu. Í því felist að staðið sé með þolendum og þeim veittur nauðsynlegur og eðlilegur stuðningur. Jafnramt snúist þetta um breytta menningu og jafnrétti á öllum sviðum.

Dagur gerir frásagnir íþróttakvenna af kynferðisofbeldi og kynferðislegri áreitni í tengslum við #metoo-byltinguna að umtalsefni í vikulegum pistli sínum. Hann segir það hafa verið honum áfall að lesa frásagnirnar.

„Brotin eru gróf og jafnvel grófari en í frásögnum annarra kvennahópa sem við höfum heyrt undanfarið og þolendurnir oft ungir. Ábyrgð gerenda er vitanlega grundvallaratriði en ábyrgð samfélagsins að hlusta – ekki aðeins á frásagnirnar heldur bregðast við er ótvíræð og mikil. Um það snýst líka ákall íþróttakvennanna,“ segir Dagur í pistli sínum.

Hann bendir á að þróttir, íþróttaþátttaka, íþróttafélög og íþróttahreyfingin í heild hafi verið aðalsmerki og stolt samfélagsins. Að oft hafi verið fjallað um jákvæð áhrif þeirra í ræðu og riti. „Samfélagið og sveitarfélögin hafa staðið myndarlega á bak við íþróttastarf með uppbyggingu og margvíslegum styrkjum. Við eigum því að finna til ábyrgðar og líta á það sem forgangsmál og frumskyldu að kynferðisleg áreitni eða ofbeldi verði ekki liðin í tengslum við íþróttastarf, keppni og æfingar.“

Hann segir ábyrgð forystu íþróttafélaga og íþróttahreyfingarinnar í heild, ásamt ábyrgð sveitarfélaganna sem fjármagna stóran hluta starfseminnar, alveg sérstaklega skýra þegar kemur að því að taka nú boltann og stíga markviss skref til að bæta úr.

„Ég hef þegar verið í sambandi við forystu Íþróttabandalags Reykjavíkur til að bjóða fram stuðning borgarinnnar við viðbrögð og úrvinnslu einstakra mála, stuðning við gerð ferla og viðbragðsáætlana þar sem slíkt vantar. Það á að vera sameiginlegt forgangsverkefni að tryggja algjört öryggi iðkenda og allra annarra sem koma að íþróttamálum – að ótöldu umhverfi jafnréttis og virðingar í öllum samskiptum. Annað kemur ekki til greina. Ég vil þakka íþróttakonunum sem að baki ákallinu standa alveg sérstaklega fyrir hugrekkið og forystuna. Nú tökum við höndum saman og gerum þær breytingar sem þarf.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert