Yfir 5.000 konur hafa krafist aðgerða

Konur krefjast aðgerða gegn kynbundnu ofbeld.
Konur krefjast aðgerða gegn kynbundnu ofbeld.

Alls hafa yfir fimm þúsund konur á Íslandi ritað undir yfirlýsingar í tengslum við #metoo-byltinguna þar sem krafist er aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi, áreitni og mismunun.

462 konur í íþróttum sendu í gær frá sér samskonar yfirlýsingu og tólf aðrir hópar kvenna hafa gert. Meðfylgjandi voru 62 frásagnir af kynferðislegri áreitni, kynferðislegu ofbeldi og mismunun.

Þessar frásagnir eru alls orðnar um 600 talsins. Fyrsta yfirlýsingin birtist frá konum í stjórnmálum í lok nóvember, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert