Búið að finna Pál

Páll Þorsteinsson.
Páll Þorsteinsson. Ljósmynd/Aðsend

Búið er að finna Pál Þorsteinsson sem lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu lýs­ti eft­ir nú í morgun. Var Páll heill á húfi og þakkar lögregla kærlega fyrir veitta aðstoð.

Björg­un­ar­sveit­ir á höfuðborg­ar­svæðinu tóku þátt í leitinni að Páli í morgun og leituðu rúmlega 140 björgunarsveitarmenn hans þegar mest var, en leitarmenn notuðust meðal annars við sporhund, leitarhunda, vélhjól, reiðhjól og dróna við leitaraðgerðirnar.

Búið var að óska eftir mannskap frá sveitum í Árnessýslu, Suðurnesjum og Vesturlandi þegar leitin var afturkölluð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert