Búið að opna Þrengslaveg

Kort/Map.is

Þrengslavegi var lokað á níunda tímanum í kvöld vegna umferðaróhapps, en að sögn lögreglunnar á Suðurlandi var vegurinn aftur opnaður um kl. 21.

Fram kom í tilkynningu, að ekki væru alvarleg slys á fólki en vegna færðar og skyggnis var veginum lokað til að tryggja öryggi viðbragðsaðila á vettvangi.

Lögreglan segir að slabb sé á veginum, hált og skafrenningur. Vegfarendur eru beðnir um að aka með gát og stilla ökuhraða í hóf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert