Fyrstu næturferðir Strætó vel nýttar

Næturvagnarnir sinna akstri aðfara­næt­ur laug­ar- og sunnu­daga.
Næturvagnarnir sinna akstri aðfara­næt­ur laug­ar- og sunnu­daga. mbl.is/Hjörtur

Fyrstu fréttir herma að næturvagnar Strætó hafi verið vel nýttir í nótt og ferðir hafi gengið áfallalaust fyrir sig. Þetta segir Guðmundur Heiðar Helgason, markaðs- og upplýsingafulltrúi Strætó. „Mér skilst að þetta hafi bara gengið vel og alveg slatti af fólki nýtt sér þetta, mikið af ungu fólki.“

Næturvagnarnir fóru sínar fyrstu ferðir í nótt þar sem sex leiðir voru í boði úr miðbænum í flest hverfi höfuðborgarsvæðisins. Leiðirnar sem um ræðir eru leiðir 101, 102, 103, 105, 106 og 111. Næturvagnarnir sinna akstri aðfara­næt­ur laug­ar- og sunnu­daga.

Stakt far­gjald með næt­ur­vögn­um er 920 krón­ur eða tveir stræ­tómiðar. Hand­haf­ar strætó­korta geta hins veg­ar notað kort­in í næt­ur­vagn­ana án frek­ari kostnaðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert