Lokahátíð Syrpurapps í beinni

Lokakeppni Syrpurapps fer fram í dag.
Lokakeppni Syrpurapps fer fram í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Lokahátíð Syrpurapps fer fram rúmlega 13:00 í dag í Smáralind, en krakkar á aldrinum 7 til 12 ára keppa þar um besta íslenska rapptextann. Sýnt verður frá lokahátíðinni hér á mbl.is. Sigurvegarinn fær að verðlaunum 10 tíma í Stúdíó Sýrlandi undir handleiðslu strákanna í Úlfi Úlfi.

Á lokahátíðinni mun Úlfur Úlfur taka lagið og Litli góði úlfurinn mætir einnig og tekur lagið. Björgvin Franz verður kynnir.

Keppnin hófst í nóvember og voru lokaskil á textum 17. des. 10 bestu textarnir að mati dómnefndar voru settir á netið 27. desember þar sem almenningur gat kosið þann texta sem honum fannst bestur. Kosningu lauk 3. janúar. Mjög góð þátttaka var í keppninni og fjöldinn allur af mjög góðum textum barst og því var val dómnefndar erfitt.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í keppninni skv. niðurstöðu dómnefndar og netkosningar. Í dómnefnd voru Úlfur Úlfur, íris Edda Nowenstein íslenskufræðingur og María Johnson frá Eddu útgáfu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert