Dagsektir á kúabú vegna vanhirðu

Búfénaður á beit.
Búfénaður á beit. mbl.is/Styrmir Kári

Matvælastofnun hefur lagt dagsektir á kúabú á Norðurlandi vegna meðferðar nautgripa. Við endurtekið eftirlit höfðu kröfur stofnunarinnar um úrbætur vegna bindinga, hreinleika og að klaufur kúnna hafi ekki verið virtar.

Dagsektirnar eru 30.000 kr. á búið þar til úrbætur hafa verið gerðar.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun

Samkvæmt reglugerð um beitingu og hámark dagsekta í opinberu eftirliti með velferð dýra taka dagsektir gildi frá og með þeim degi sem þær eru ákvarðaðar og fram að þeim degi sem skyldu er fullnægt að mati Matvælastofnunar. Dagsektir falla niður ef umráðamaður dýra hefur bætt á fullnægjandi hátt úr aðstæðum og aðbúnaði dýra, að mati Matvælastofnunar, innan fimm virkra daga frá ákvörðun stofnunarinnar um dagsektir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert