Eldur í kjúklingabúi

Eldur kom upp á kjúklingabúi á bænum Oddssmýri í Hvalfirði á þriðja tímanum í dag. Fjöldi kjúklinga drapst í eldinum en flestir þeirra komu á búið í gær, að sögn lögreglu.

Eldurinn var ekki mikill, en allt tiltækt lið slökkviliðs Akraness, um 15 manns á fjórum bílum, var sent á vettvang. Að sögn lögreglu er búið að slökkva eldinn og stendur reykræsting yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert