Engin hætta á ferðum

Jarðvegsgerlarnir mældust í neysluvatni í kjölfar mikils vatnsveðurs síðustu daga. …
Jarðvegsgerlarnir mældust í neysluvatni í kjölfar mikils vatnsveðurs síðustu daga. Ekki er um hættulega mengun að ræða að sögn framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar. mbl.is/Hanna

„Þetta er frekar lítil mengun, en yfir mörkum samkvæmt íslensku neysluvatnsreglugerðinni, og okkur þótti rétt að láta almenning vita, eins og rétt er,“ segir Árný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar, í samtali við mbl.is.

Fjölg­un jarðvegs­gerla hef­ur mælst í kalda vatn­inu í Reykja­vík, en tvö sýni sem Heil­brigðis­eft­ir­lit Reykja­vík­ur tók 12. janú­ar stóðust ekki viðmið í reglu­gerð.

Frétt mbl.is: Jarðvegsgerlar í kalda vatninu í Reykjavík

Tvenns konar mælingar hafa farið fram síðustu daga. Í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur kemur fram að 11. janúar hafi 1 E-coli / 100 ml mælst í neysluvatnssýnum úr borholum í rekstri á vatnsverndarsvæðinu í Heiðmörk. „E. coli er baktería sem ekki á að finnast í vatninu. Þetta frávik í neysluvatninu varð vegna mikils vatnsveðurs þann 9. janúar sl.,“ segir í tilkynningunni.

Árný segir að vatn úr þeirri borholu hafi aldrei borist í dreifikerfið. Því hafi aldrei verið um E-coli-mengun að ræða.  

Ofanvatn komst í borholur vegna mikils vatnsveðurs

Í sýnum sem tekin voru í kjölfar mikils vatnsveðurs 11. og 14. janúar hefur hins vegar komið í ljós að ofanvatn hefur komist í borholur og finnast jarðvegsbakteríur í vatninu úr nokkrum borholum. Jarðvegsgerlar eru gerlar sem finnast meðal annars í mold og sandi. „Þetta getur verið gróður eða mold sem liggur ofan á klakanum,“ segir Árný.

Víða erlendis telst magnið sem mælst hefur í dreifikerfinu hér á landi ekki til tilkynningaskyldrar mengunar, að sögn Árnýjar. „En við erum vön hreinu vatni og þetta er okkar regluverk og þess vegna gáfum við út tilkynninguna.“

Áfram verður fylgst vel með borholunum og mun Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar vinna náið með sóttvarnarlækni og Matvælastofnun við eftirlitið. „En það er engin hætta á ferðum,“ segir Árný.  

Viðkvæmir sjóði neysluvatn í varúðarskyni

Í varúðarskyni mæl­ir Heil­brigðis­eft­ir­litið samt sem áður með því að neyslu­vatn í viss­um hverf­um borg­ar­inn­ar sé soðið ef um neyt­end­ur er að ræða sem eru viðkvæm­ir. Með viðkvæm­um er átt við þá sem eru til dæm­is með lé­legt ónæmis­kerfi, ung­börn, aldraða eða fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. 

Hverf­in sem meng­un­in nær til eru öll hverfi borg­ar­inn­ar nema Grafar­vog­ur, Norðlinga­holt, Úlfarsár­dal­ur og Kjal­ar­nes auk Mos­fells­bæjar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert