Krafa kvennanna sanngjörn og eðlileg

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, segir kröfu prestvígðra kvenna bæði sanngjarna og eðlilega. Fulltrúar hópsins afhentu í morgun yfirstjórn þjóðkirkjunnar áskorun, sem greint var frá á mbl.is, þar sem krafist er breytinga á vinnuumhverfi og vinnuaðstæðum kvenna í kirkjunni. Þá fylgdu áskoruninni undirskriftir 64 kvenna og sögur þeirra í anda #metoo byltingarinnar.

Agnes segir sögurnar ekki koma sér á óvart, hún hafi sjálf starfað innan kirkjunnar í nær 40 ár og bæði upplifað og séð ýmislegt. „Hitt er svo öllum ljóst að kirkjan hefur um langa hríð reynt að vinna úr áreitni- og ofbeldismálum þar sem sumt hefur tekist vel en annað síður,“ segir Agnes.

Rifjar hún upp að kirkjan hafi sett sér vinnureglur um meðferð áreitnimála og að nú sé verið að taka upp verklag í viðkvæmum aðstæðum. „Ég tek hjartanlega undir þá sanngjörnu og eðlilegu kröfu sem prestvígðar konur hafa sett fram. Ég mun leggja mig alla fram við að bæta starfsumhverfi kvenna og samskiptin milli fólks í kirkjusamfélaginu,“ segir Agnes að lokum.

Yfirlýsing biskups í heild sinni:

„Fulltrúar prestvígðra kvenna afhentu í morgun yfirstjórn þjóðkirkjunnar áskorun, þar sem krafist er breytinga á vinnuumhverfi og -aðstæðum kvenna í kirkjunni. Líkt og konur í öðrum starfsstéttum hafa þær orðið fyrir kynbundinni áreitni, mismunun og jafnvel kynferðisofbeldi í starfi. Ásamt undirritaðri tóku forseti kirkjuþings og framkvæmdastjóri kirkjuráðs við áskoruninni, en henni fylgdu 64 frásagnir í anda #MeToo.

Ég er afar þakklát öllum þeim sem stigið hafa fram, sagt frá sinni reynslu og haldið á lofti kröfunni um heilbrigt og öruggt vinnuumhverfi, sanngirni og virðingu í samskiptum milli fólks. Það er mikilvægt að enginn loki augunum gagnvart þeirri samfélagslegu meinsemd sem kynbundin áreitni og ofbeldi sannarlega er, að því er virðist í öllum kimum samfélagsins.

Frásagnir prestvígðra kvenna komu mér ekki á óvart. Ég hef sjálf starfað innan kirkjunnar í nær 40 ár og bæði upplifað og séð ýmislegt á þeim tíma. Hitt er svo öllum ljóst að kirkjan hefur um langa hríð reynt að vinna úr áreitni- og ofbeldismálum þar sem sumt hefur tekist vel en annað síður. 

Fyrir 20 árum setti kirkjan sér fyrst vinnureglur um meðferð áreitnimála sem upp kynnu að koma. Í tengslum við þær er nú verið að taka upp verklag í viðkvæmum aðstæðum, þar sem m.a. er gert ráð fyrir því að starfsfólk sæki sérstakt námskeið og fái þekkingu sína vottaða hjá utanaðkomandi sérfræðingum. Þá fer þjóðkirkjan fram á það við starfsfólk og umsækjendur um starf, að þeir heimili kirkjunni að afla upplýsinga úr sakaskrá og þar sem kannað verði hvort þeir hafi gerst brotlegir við barnaverndarlög, nokkra flokka almennra hegningarlaga og lög um ávana- og fíkniefni.

Starfsreglur kirkjunnar fela í sér heildstæða nálgun á málaflokkinn, þar sem mál eru sett í skýran fyrirfram skilgreindan farveg. Markmiðið er að tryggja rétta málsmeðferð hverju sinni og styðja við þolendur, t.d. hvetja þá til að kæra mál til lögreglu séu þau þess eðlis og veita hverjum og einum faglegan stuðning, og eftir atvikum einnig gerendum.  Í sumum málum er kveðið á um skilyrðislausa tilkynningaskyldu til yfirvalda, frávísun úr starfi – ýmist tímabundna á meðan rannsókn stendur yfir eða varanlega – svo dæmi séu nefnd. Reglurnar hafa reynst vel en þarfnast stöðugrar rýni, ekki síst hvað varðar forvarnir og fræðslu.

Ég tek hjartanlega undir þá sanngjörnu og eðlilegu kröfu sem prestvígðar konur hafa sett fram. Ég mun leggja mig alla fram við að bæta starfsumhverfi kvenna og samskiptin milli fólks í kirkjusamfélaginu.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert