Tvö og hálft ár fyrir nauðgun

mbl.is

Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann á fertugsaldri, Eldin Skoko, í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu aðfaranótt laugardagsins 1. júlí í fyrra.

Hann hefur einnig verið dæmdur til að greiða konunni eina og hálfa milljón króna í miskabætur, með vöxtum.

Maðurinn var ákærður fyrir að hafa komið að konunni þar sem hún lá ælandi fyrir utan skemmtistað, farið með hana inn í íbúð og lagt hana í rúm.

„Hafi hann þannig notfært sér að stúlkan gat ekki spornað við kynferðismökunum sökum máttleysisástands og slævðrar meðvitundar hennar, auk þess sem hann notfærði sér að hún var einsömul, í ókunnugu húsnæði, sem hann hafði sjálfur fært hana í, og að hann var henni ókunnugur,“ segir í niðurstöðu héraðsdóms.

Maðurinn neitaði því að hafa haft við hana samræði og hélt því fram að kynferðismökin hefðu verið með fullu samþykki hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert