Búið að opna Suðurlandsveg

Frá vettvangi í morgun.
Frá vettvangi í morgun.

Búið er að opna fyrir umferð á Suðurlandsvegi við Hádegismóa þar sem umferðarslys varð í morgun. 

Alls voru þrír fluttir á sjúkrahús eftir slysið sem varð á mótum Vest­ur­lands­veg­ar og Suður­landsveg­ar um átta­leytið í morg­un. Um tveggja bíla árekst­ur var að ræða og er ökumaður annarr­ar bif­reiðar­inn­ar með tölu­verða áverka. Hinir tveir eru minna slasaðir.

Miklar tafir urðu á umferð á meðan lögregla og sjúkralið athöfnuðu sig á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert