Eiríkur situr ekki áfram

Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrarbæjar.
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrarbæjar.

Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, ætlar ekki að sækjast eftir embættinu áfram að loknum bæjarstjórnarkosningum.

Hann hefur setið á stóli bæjarstjóra frá 2002; fyrst tvö kjörtímabil á Egilsstöðum og tíminn á Akureyri verður orðinn jafnlangur þegar kosið verður í vor. Var ráðinn nyrðra 2010 þegar Listi fólksins náði meirihluta í bæjarstjórn.

„Þetta er orðinn ágætur tími, krefjandi starf en mjög skemmtilegt,“ segir Eiríkur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert