Neysluvatn á höfuðborgarsvæði öruggt

Óhætt er að drekka vatn á höfuðborgarsvæðinu.
Óhætt er að drekka vatn á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Niðurstaða fundar sem var haldinn í stjórnskipaðri samstarfsnefnd um sóttvarnir í morgun var sú að mengun sem mældist í neysluvatni víða í Reykjavík og á Seltjarnarnesi sé einangrað fyrirbæri í kjölfar mikilla vatnavaxta.

Það leiddi til þess að gæði neysluvatns hefur í nokkra daga ekki staðist ýtrustu gæðakröfur.

„Niðurstöður mælinga á vatninu benda til að ekki er talin hætta á heilsufarslegum afleiðingum við neyslu þess á ofangreindum svæðum,“ segir í tilkynningu á vefsíðu embættis Landlæknis.

„Samstarfsnefndin telur ekki þörf á að almenningur á svæðum þar sem mengunin hefur mælst sjóði vatn fyrir neyslu og ekki sé þörf á sérstökum varúðarráðstöfunum. Einnig er óhætt að nota neysluvatnið í matvæla- og drykkjarframleiðslu.“

Áfram fylgst með gæðum 

Í tilkynningunni kemur fram að Veitur OHF og heilbrigðiseftirlitin á höfuðborgarsvæðinu munu áfram fylgjast með gæðum neysluvatns og mun birta niðurstöður mælinga á sínum vefsíðum. Samstarfsnefndin mun áfram fylgjast náið með menguninni og birta leiðbeiningar til almennings þegar tilefni gefst til.

Fundinn í morgun sátu fulltrúar sóttvarnalæknis, heilbrigðiseftirlita Reykjavíkur, Kjósarsvæðis, Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, sýkingavarna- og sýklafræðideildar Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Matvælastofnunar, MATÍS, Veitna OHF og Geislavarna ríkisins.

Rætt var um þá mengun sem mælst hefur í neysluvatninu á ýmsum stöðum höfuðborgarinnar og á Seltjarnarnesi nema Grafarvogi, Norðlingaholti, Úlfarsárdal, Kjalarnesi og Mosfellsbæ. Engin mengun hefur mælst í neysluvatni í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert