Segir snjómokstur ekki nýtast öllum

Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar segir að Vegagerðin mismuni íbúum dalanna um umferðaröryggi.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar segir að Vegagerðin mismuni íbúum dalanna um umferðaröryggi. Ljósmynd/Mats.is.

Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar fagnar því að Vegagerðin sjái nauðsyn til þess að auka við snjómokstur í Svarfaðardal. Ráðið furðar sig aftur á móti á því í hverju aukningin á snjómokstri er fólgin og telur að hún muni ekki nýtast öllum íbúum í Svarfaðar- og Skíðadal.

Þetta kom fram á fundi umhverfisráðsins í gær þar sem rætt var um boðaða aukna vetrarþjónustu og hálkuvarnir í Svarfaðardal.

„Það er með hreinum ólíkindum að Vegagerðin skuli leyfa sér að mismuna íbúum dalanna um umferðaröryggi eftir því hvar þeir búa. Það fer skólabíll í báða dalina alla virka daga og einnig sækja íbúar þar vinnu til Dalvíkur,“ segir í fundargerð.

Aðeins tvö af tólf mjólkurbúum

Fram kemur að í báðum dölunum séu ferðaþjónustufyrirtæki sem þurfi á góðri vetrarþjónustu að halda.

„Einnig má geta þess að á þeirri leið sem Vegagerðin leggur til að aukin þjónusta verði, eru einungis tvö af tólf mjólkurbúum í dölunum og sækir mjólkurbíllinn mjólk á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum,“ segir einnig í fundargerðinni.

„Umhverfisráð gerir kröfu um að í fyrirhuguðu snjómokstursútboði verði gert ráð fyrir sjö daga þjónustu í Svarfaðardal og Skíðadal og búið verði að moka áður en skólabíllinn kemur kl. 07:30.

Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar skorar á þingmenn kjördæmisins, samgönguráðherra og vegamálastjóra að beita sér fyrir ofangreindum tillögum ráðsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert