Skoða næringu mæðra á meðgöngu

AFP

Næring móður á meðgöngu getur haft áhrif á framtíðarhorfur barnsins sem fullorðins einstaklings.

„Það gerist mjög margt í móðurkviðnum. Við vitum t.d. að næring móður á meðgöngu hefur áhrif á vöxt barnanna, þroska, getu þeirra til að læra og hegðun og fleira síðar á lífsleiðinni,“ segir Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.

Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag segir hún næringarástand barnshafandi kvenna á Íslandi ekki hafa verið rannsakað nógu ítarlega en slík rannsókn er þó í gangi núna í samstarfi við Landspítalann.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert