Þrír fluttir á sjúkrahús

Af vettvangi í morgun.
Af vettvangi í morgun.

Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys á mótum Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar um áttaleytið í morgun. Um tveggja bíla árekstur er að ræða og er ökumaður annarrar bifreiðarinnar með töluverða áverka. Hinir tveir eru minna slasaðir.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er tæknideild lögreglunnar að störfum á vettvangi og því áfram tafir á umferð og ökumenn beðnir um að fara í gegnum Árbæ og Breiðholtsbraut.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er Suðurlandsvegur á móts við Krókháls enn lokaður og verður lokaður um óákveðinn tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert