Aldrei fleiri útlendingar á vinnumarkaði

Útlendingum á vinnumarkaði fjölgaði mikið milli ára. Alls voru 24.340 …
Útlendingum á vinnumarkaði fjölgaði mikið milli ára. Alls voru 24.340 útlendingar á vinnumarkaði í fyrra og hafa aldrei verið fleiri. mbl.is/​Hari

Alls voru 24.340 útlendingar á vinnumarkaði hér á landi í fyrra og hafa aldrei verið fleiri. Fjölgaði þeim umtalsvert frá árinu 2016 en þá voru þeir 20.605. Pólverjar eru sem fyrr fjölmennastir útlendinga á vinnumarkaði hér, alls 10.766 í fyrra.

Þetta kemur fram í tölum Vinnumálastofnunar um vinnuafl 16-69 ára og þróun þess. Alls voru 196.587 á vinnumarkaði í fyrra. Hlutfall útlendinga á vinnumarkaði var 12,4% en var 10,6% árið 2016.

Mun fleiri útlendingar eru við störf á Íslandi nú en á árunum fyrir efnahagshrunið 2008. Það ár voru 18.167 útlendingar á vinnumarkaði á Íslandi eða 9,9% alls vinnuafls, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert