Ræddu norræna samvinnu og öryggismál

Guðlaugur Þór Þórðarson fylgdi forseta Íslands í opinbera heimsókn til …
Guðlaugur Þór Þórðarson fylgdi forseta Íslands í opinbera heimsókn til Svíþjóðar sem hófst í dag. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Tvíhliða samskipti Íslands og Svíþjóðar, norræn samvinna, Brexit og öryggismál voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Margot Wallström, utanríkisráðherra Svíþjóðar.

Guðlaugur Þór er í föruneyti Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, sem staddur er í opinberri heimsókn í Svíþjóð.

Frétt mbl.is: Guðni flutti ávarp á sænsku

Ráðherrarnir fóru um víðan völl á fundi sínum en málefni norðurslóða og loftslagsmál voru einnig rædd, sem og friðarhorfur fyrir botni Miðjarðarhafs. Svíþjóð er meðal ríkja sem eiga sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þessa stundina.

Margot Wallström, utanríkisráðherra Svíþjóðar.
Margot Wallström, utanríkisráðherra Svíþjóðar. AFP

„Samskipti Íslands og Svíþjóðar eru náin og fara vaxandi, meðal annars á sviðum viðskipta og ferðamennsku, auk þess sem fjölmargir Íslendingar leggja stund á nám og búa í Svíþjóð,“ er haft eftir Guðlaugi Þór í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Hlakkar til að taka við formennsku

Guðlaugur Þór segir það vera tilhlökkunarefni að taka við formennsku í Norðurlandasamstarfi af Svíum um næstu áramót. „Þá er Svíþjóð, auk Finnlands, sérstaklega mikilvægt samstarfsríki Atlantshafsbandalagsins og varnarsamvinna ríkjanna hefur aukist hröðum skrefum. Það er því sérlega ánægjulegt að opinber heimsókn forseta Íslands til Svíþjóðar eigi sér stað á þessum tímapunkti, og við látum úrslit gærkvöldsins í handboltanum ekki skyggja þar á,“ segir Guðlaugur Þór.

Fyrr í dag fylgdi Guðlaugur Þór forseta Íslands á fundi forseta sænska þingsins og forsætisráðherra Svíþjóðar, og situr í kvöld hátíðarkvöldverð konungshjónanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert