Rannsaka lát fransks ferðamanns

mbl.is/Sverrir

Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú andlát fransks ferðamanns sem björgunarsveitarmenn fundu látinn í brattlendi við Sandfell í Öræfum um hádegisbil í gær. Farið var að grenslast fyrir um ferðir mannsins eftir að þjóðgarðsvörður hafði gert bílaleigu viðvart um að bifreið frá henni, Volkswagen Polo, 4 dyra, grá að lit, hafi staðið um einhvern tíma á bílastæðinu við Sandfell.  

Maðurinn mun hafa tekið bifreiðina á leigu til eins mánaðar þann 24. desember og síðast er vitað um ferðir hans í Skaftafelli þann 29. desember sl. að því er fram kemur á Facebook-síðu lögrelgunnar á Suðurlandi.

Franska sendiráðið á Íslandi hefur upplýst aðstandendur mannsins um málið. Beðið er niðurstöðu réttarkrufningar um dánarmein mannsins, en ekki er talið að það hafi borið að með saknæmum hætti.

Hafi einhver orðið umræddrar bifreiðar var á tímabilinu frá 29.12.2017 til 15.01.18 er sá hinn sami beðinn að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi í síma 4442000 eða með tölvupósti á sudurland@logreglan.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert