Skipa samráðshóp um að gera úrbætur

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á sæti í nefndinni.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á sæti í nefndinni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ráðherranefnd um jafnréttismál ákvað á fundi sínum í morgun að að skipa samráðshóp um heildstæðar úrbætur er varðar kynferðislegt ofbeldi, en hópnum verður m.a. falið að fylgja eftir nýrri aðgerðaáætlun um úrbætur í meðferð kynferðisbrota.

Fyrsti fundur ráðherranefndar um jafnréttismál var haldinn í forsætisráðuneytinu í morgun. Ráðherranefnd um jafnréttismál var skipuð af ríkisstjórninni á fundi hennar 5. desember  í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um að Ísland verði sterk rödd á alþjóðavettvangi með því að leggja áherslu á og vera fyrirmynd í jafnréttismálum.

Hlutverk ráðherranefndar um jafnréttismál er að samhæfa störf ráðherra og ríkisstjórna á sviði jafnréttismála. Forsætisráðherra, félags- og jafnréttismálaráðherra, dómsmálaráðherra, heilbrigðisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra eiga fast sæti í nefndinni en aðrir ráðherrar sitja fundi nefndarinnar eftir þörfum. 

„Á fundinum var ákveðið að skipa samráðshóp um heildstæðar úrbætur er varðar kynferðislegt ofbeldi, en hópnum verður m.a. falið að fylgja eftir nýrri aðgerðaáætlun um úrbætur í meðferð kynferðisbrota. Þá var farið yfir lög um jafnlaunavottun, sem kveða á um að fyrirtæki og stofnanir þar sem 25 eða fleiri starfsmenn starfa að jafnaði á ársgrundvelli skuli öðlast jafnlaunavottun. Loks var fjallað um víðtækar og samræmdar aðgerðir til að taka á kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni eða ofbeldi auk eineltis á íslenskum vinnumarkaði og meðal félagasamtaka hér á landi.

Ráðherranefndin mun funda reglulega á næstunni og taka til umfjöllunar mál sem eru brýn til þess að tryggja framgöngu jafnréttismála hér á landi,“ segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert