Blindaðist af sólinni og klessti á

mbl.is/Hjörtur

Harður árekstur varð í vikunni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum þegar bifreið var ekið aftan á aðra sem var að nálgast gatnamót á hægri ferð. Ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar hafði blindast af sólinni sem var lágt á lofti og því fór sem fór.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni, en báðir ökumennirnir voru fluttir undir læknis hendur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og fjarlægja þurfti bifreiðirnar með dráttarbifreið.

Þá varð þriggja bíla árekstur í Njarðvík og tvær bifreiðar rákust jafnframt saman á Ásbrú. Skemmdir urðu á ökutækjunum en ekki slys á fólki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert