Á leið til Los Angeles í boði K100 og WOW air

Vinningshafarnir eru á leið til Los Angeles.
Vinningshafarnir eru á leið til Los Angeles. mbl.is/Eggert

Það voru glaðir hlustendur sem mættu til hátíðlegrar athafnar í Hádegismóum í gær. Þær Aðalheiður G. Hauksdóttir, Eirún Eðvaldsdóttir og Þóra Kjartansdóttir mættu ásamt mökum og börnum í hljóðver K100 til þess að taka við flugmiðum til ævintýraborgarinnar Los Angeles, í boði K100 og WOW air.

Vinningana fengu þær í stafarugli, skemmtilegum leik sem er í anda orðasnakksins sem notið hefur mikilla vinsælda á Fésbókinni undanfarið. Leikurinn fór fram í morgunþætti K100, Ísland vaknar, sem er í umsjón Ásgeirs Páls, Jóns Axels og Kristínar Sifjar.

Jón Axel og Kristín Sif festu orðin sem notuð voru í leiknum á höfuð Ásgeirs Páls og til þess að taka þátt í stafaruglinu þurftu hlustendur að fylgjast með beinni sjónvarpsútsendingu úr hljóðveri K100 á rás 9 í sjónvarpi Símans eða á K100.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert