Ásgerður skipar fyrsta sætið

Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.

Alls greiddu 711 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri fékk flest atkvæði eða 534 atkvæði alls, en 463 í fyrsta sætið en hún var sú eina af þeim sem tóku þátt í prófkjörinu sem stefndi á fyrsta sætið. 

Niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi í dag:
1. Ásgerður Halldórsdóttir með 534 atkvæði.
2. Magnús Örn Guðmundsson með alls 533 atkvæði.
3. Sigrún Edda Jónsdóttir með alls 504 atkvæði. 
4. Bjarni Torfi Álfþórsson með alls 422 atkvæði.
5. Ragnhildur Jónsdóttir
6. Sigríður Sigmarsdóttir
7. Guðrún Jónsdóttir

Upplýsingar um frambjóðendur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert