Landspítalinn aldrei jafnöflugur og nú

mbl.is//Sigurður Bogi Sævarsson

Forstjóri Landspítalans, Páll Matthíasson, segir að spítalinn hafi aldrei verið öflugri en nú og rangt sé að hann ætli að draga úr starfsemi líkt og fram hafi komið í fréttum. 

„Landspítali er oft og iðulega í kastljósi umræðunnar, eðli máls samkvæmt. Á degi hverjum birtast 10-12 fréttir sem tengjast starfsemi spítalans. Undanfarið hefur mikið álag á spítalanum vakið athygli og ekki að ósekju en iðulega er þetta afar annasamur tími hjá okkur.

Af vef Landspítalans

Rekstur spítalans er sömuleiðis oft í deiglunni og ég hjó eftir þeim staðhæfingum í vikunni að vegna fyrirkomulags fjárveitinga til spítalans kjósi hann að draga úr starfsemi fremur en auka hana. Þetta er rangt. Þvert á móti höfum við aldrei tekið á móti fleiri sjúklingum, sem sífellt eru veikari, gert fleiri aðgerðir og veitt flóknari meðferðir og árangurinn okkar er svo sannarlega eftirtektarverður.

Landspítali hefur í raun aldrei verið öflugri enda starfar hér í framlínu hæfasta starfsfólkið við flókin störf.  Enda þótt bæta megi rekstrarumhverfi spítalans verður ekki á móti því mælt að Landspítali spilar vel úr því fé sem til hans er veitt og hverri krónu sem til spítalans kemur er vel varið,“ segir í forstjórapistli frá því í gær.

Þar kemur einnig fram að spítalinn hafi ákveðið að flýta gerð samskiptasáttmála Landspítala. „Honum er ætlað að skýra hvernig við viljum að samskiptum okkar í millum sé háttað hér á spítalanum og hvernig við viljum ekki að þau séu. Þetta kann að hljóma einfalt verkefni og fljótafgreitt enda ætti kurteisi og tillitssemi í samskiptum að vera sjálfsögð.

„Niðurstöður örkönnunar um samskipti á spítalanum sem við gerðum í kjölfar #metoo-byltingarinnar benda þó til þess að ýmislegt geti betur farið í samskiptum innan spítalans.

Við höfum því hafið vinnuna og gerum ráð fyrir að þróun samskiptasáttmálans verði 3-4 mánaða verkefni sem allt starfsfólk er eindregið hvatt til að taka þátt í.

Um er að ræða 50 funda syrpu sem framkvæmdastjórar spítalans munu leiða. Á fundunum verður meðal annars safnað saman sögum starfsfólks af atvikum og ábendingum um úrbætur haldið til haga. Í kjölfarið verður unnið úr efni fundanna með skipulögðum hætti og inntak sáttmálans mótað,“ segir í pistli forstjóra Landspítalans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert