Banaslys á Arnarnesvegi

mbl.is/Sverrir

Ungur maður lést í bílslysi á Arnarnesvegi um hálfþrjú í nótt, samkvæmt upplýsingum frá aðalvarðstjóra í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Bifreiðinni var ekið vestur Arnarnesveg og hafnaði hún á steinvegg á hringtorgi á brúnni yfir Reykjanesbraut. 

Ungi maðurinn, sem var rúmlega tvítugur að aldri, var einn í bílnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert