Gefa eftir leyfi á Drekasvæðinu

Leyfishafar hafa lokið fyrsta hluta rannsóknaráætlunar og hafa, að mati …
Leyfishafar hafa lokið fyrsta hluta rannsóknaráætlunar og hafa, að mati Orkustofnunar, uppfyllt skilyrði þess áfanga. Øyvind Hagen

CNOOC Iceland ehf. og Petoro Iceland AS hafa gefið eftir sérleyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetni á Drekasvæðinu milli Íslands og Jan Mayen. Orkustofnun telur að þriðja fyrirtækið sem fékk tólf ára sérleyfi til rannsókna og vinnslu, Eykon Energy, ráði hvorki yfir tæknilegri, jarðfræðilegri né fjárhagslegri getu til að takast eitt á við þá starfsemi sem í næsta áfanga rannsóknaráætlunarinnar felst.

Orkustofnun veitti CNOOC, Petoro og Eykon Energy tólf ára sérleyfi til rannsókna og vinnslu á Drekasvæðinu fyrir fjórum árum.

Leyfishafar hafa lokið fyrsta hluta rannsóknaráætlunar og hafa, að mati Orkustofnunar, uppfyllt skilyrði þess áfanga. Í ljósi fyrirliggjandi gagna um jarðfræði svæðisins og annarra þátta, sem varða m.a. rannsóknarkostnað að teknu tilliti til áhættu, hafa CNOOC Iceland ehf. og Petoro Iceland AS, í samræmi við skilmála leyfisins, ákveðið að gefa leyfið eftir.

Eykon hefur ekki gefið eftir sinn hlut en Orkustofnun telur að með eftirgjöf CNOOC og Petoro á leyfinu séu brostnar forsendur fyrir áframhaldandi gildi þess og hefur Eykon verið kynnt matið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert