Tugir bíla hafa setið fastir í Víkurskarði

mbl.is/Hjörtur

Tugir bíla hafa setið fastir í Víkurskarði vegna veðurs en að sögn lögreglunnar á Akureyri er búið að losa meirihluta þeirra.

Einnig er búið að losa flutningabílinn sem þveraði þar veginn.

Björgunarsveitirnar Súlur, Ægir og Týr hafa verið önnum kafnar við björgunarstarf í Víkurskarði, að sögn lögreglunnar.

Ekki er talið að Víkurskarð verði opnað aftur fyrir nóttina. Vegunum um Fróðárheiði, Hófaskarð, Kleifaheiði, Víðidal og Miðfjörð hefur einnig verið lokað vegna veðurs.

Þriggja bíla árekstur á Akureyri 

Þriggja bíla umferðaróhapp varð í Kaupvangsstræti á Akureyri um áttaleytið í kvöld sem rekja má til hálku. Enginn slasaðist í óhappinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert