Úrslit í formannskjöri kunngerð í dag

Eftirmaður Ólafs Loftssonar verður kunngerður í dag.
Eftirmaður Ólafs Loftssonar verður kunngerður í dag.

Úrslit í formannskjöri Félags grunnskólakennara verða kunngerð í dag klukkan 14, en rafræn kosning hefur staðið yfir á vef félagsins síðan 18 janúar sl.

Kjörsókn hefur verið afar dræm, en einungis 8% félagsmanna höfðu kosið nú fyrir helgi. Nýr formaður mun taka við embætti af fráfarandi formanni, Ólafi Loftssyni, á aðalfundi Félags grunnskólakennara í maí.

Fimm aðilar hafa gefið kost í sér í embætti formanns: Hjördís Albertsdóttir, Kjartan Ólafsson, Kristján Arnar Ingason, Rósa Ingvarsdóttir og Þorgerður Laufey Diðriksdóttir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert