Nefnd um stofnun miðhálendisþjóðgarðs

Nefndin mun leiða vinnu um stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands.
Nefndin mun leiða vinnu um stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands. mbl.is/Rax

Ríkisstjórnin ákvað í dag, að tillögu Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, að skipa þverpólítíska nefnd til að leiða vinnu um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu.

Með nefndinni mun starfa samráðshópur helstu hagsmunaaðila og almannasamtaka, að því er kemur fram í tilkynningu.

Leitað verður tilnefninga í nefndina frá öllum flokkum á Alþingi, auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga og fulltrúa frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu.

Nefndinni er meðal annars ætlað að skilgreina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslur um skiptingu landssvæða innan hans í verndarflokka.

Einnig er nefndinni ætlað að fjalla um hugsanlegar aðkomuleiðir og þjónustumiðstöðvar, svæðisskiptingu og rekstrarsvæði og greina tækifæri með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf. Jafnframt er henni ætlað að gera tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndaráætlunum og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn.

Til grundvallar starfi nefndarinnar liggur skýrsla nefndar umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hagaðila um forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands sem kom út í nóvember 2017.

Gert er ráð fyrir að nefndin skili ráðherra tillögu sinni í formi skýrslu og tillögu að lagafrumvarpi um þjóðgarðinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert