Grunsamlegra manna leitað með dróna

Mynd af dróna úr safni.
Mynd af dróna úr safni. AFP

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði í morgun í tveimur hverfum Garðabæjar, Akra- og Mýra,  að tveimur dökkklæddum mönnum sem bönkuðu upp á í húsi í Mýrarhverfi. Þar sem húsráðendur reyndust heima forðuðu þeir sér á hlaupum og var talið þeir feldu í hverfinu.

Við leitina notaði lögregla meðal annars dróna en að sögn Gunnars Hilmarssonar aðalvarðstjóra bar leitin ekki árangur.

Tugir innbrota hafa verið tilkynntir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu og hafa mörg þeirra verið framin í Garðabæ.

Spurður út í notkun á dróna við leit að glæpamönnum segir Gunnar að lögreglan leggi mikið kapp á að finna innbrotsþjófana til að stöðva þennan innbrotafaraldur. 

Grunur leikur á að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða. Flest innbrotanna eiga það sameiginlegt að vera framin á daginn og að stolið sé skartgripum og peningum en önnur verðmæti látin ósnert.

Oftar en ekki virðast skartgripir og peningar á heimilum vera geymdir í svefnherbergjum og þangað hafa þjófarnir leitað. Þótt þjófavarnarkerfi séu á mörgum heimilum virðist sem hreyfiskynjarar séu ekki staðsettir í eða við svefnherbergi og er það umhugsunarefni. Allt kapp er lagt á að reyna að upplýsa þessi mál og því viljum við rifja upp nokkur atriði, bæði í þeirri von hafa hendur í hári innbrotsþjófanna og ekki síður að koma í veg fyrir innbrot.

„Ekki er ósennilegt að sést hafi til þjófanna í einhverjum tilvikum og því er ítrekað að fólk láti lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir (taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess.

Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða, hringja jafnvel dyrabjöllunni og þykjast vera að spyrja eftir einhverjum, og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan.

Lögreglan vill ennfremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum, t.d. að loka gluggum, þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau. Sérstaklega er minnt á að útiljós séu kveikt þar sem þau eru til staðar, hvort sem um ræðir bakatil við hús eða að framanverðu. Slíkt einfaldar nágrönnum að sjá umferð/mannaferðir við húsin,“ segir á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert