Elenora maður ársins á Suðurnesjum

Elenóra Rós er maður ársins á Suðurnesjum.
Elenóra Rós er maður ársins á Suðurnesjum. Ljósmnd/Víkurfréttir

Sautján ára bakaranemi úr Reykjanesbæ, Elenora Rós Georgesdóttir, hefur verið valin maður ársins 2017 á Suðurnesjum hjá Víkurfréttum. Þetta er í 28. sinn sem Víkurfréttir velja mann ársins.

Elenora, sem er 17 ára gamall bakaranemi við Menntaskólann í Kópavogi, bakaði kökur og seldi þær til styrktar Barnaspítala Hringsins og í lok árs afhenti hún spítalanum styrk að upphæð hálfrar milljónar króna, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Að auki hljóp hún í Reykjavíkurmaraþoninu síðasta sumar til styrktar spítalanum.

Elenora er með meðfæddan sjúkdóm og hefur því dvalið töluvert á Barnaspítala Hringsins í gegnum tíðina. Vegna þessa vildi hún gefa til baka.

„Það tók mig eitt ár að safna þessum pening og ég labbaði út af spítalanum með tárin í augunum. Mér finnst Barnaspítalinn svo innilega hlýr staður og ég get ómögulega lýst tilfinningunni þegar ég knúsaði Hringskonur með bros á vör og þær þökkuðu mér fyrir,“ segir hún í tilkynningunni.

Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, sagði þegar hann tilkynnti Elenoru um tilnefninguna að hún væri glæsileg fyrirmynd ungs fólks, léti drauma sína rætast um leið og hún léti gott af sér leiða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert