Þjóðgarðurinn verði tilefndur á heimsminjaskrá UNESCO

Undirritunin fór fram við Hoffellsjökul í dag, en auk ráðherranna …
Undirritunin fór fram við Hoffellsjökul í dag, en auk ráðherranna tveggja voru viðstödd fulltrúar sveitarfélaga, Vatnajökulsþjóðgarðs, og höfunda texta, ásamt verkefnisstjórn. Ljósmynd/Snorri Baldursson

Vatnajökulsþjóðgarður og hluti gosbeltisins verða tilnefnd á heimsminjaskrá UNESCO en Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, undirrituðu í dag tilnefninguna fyrir hönd íslenska ríkisins.

Umsóknin verður afhent heimsminjaskrifstofu UNESCO í París miðvikudaginn 31. janúar 2018.

Í tilnefningunni er áhersla lögð á rekbeltið, heita reitinn undir landinu og eldstöðvakerfi í gosbeltunum ásamt samspili elds og íss sem einstakt er talið á heimsvísu. Á heimsminjaskrá UNESCO eru staðir sem teljast hafa gildi ekki einvörðungu fyrir viðkomandi land heldur fyrir allt mannkyn, að því er fram kemur í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu.

Lilja Alfreðsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson við undirritunina í dag.
Lilja Alfreðsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson við undirritunina í dag. Ljósmynd/Snorri Baldursson

Þar segir ennfremur, að mikil ásókn sé frá ríkjum heims að fá staði á heimsminjaskránna og eru sett ströng skilyrði af hálfu heimsminjanefndar áður en samþykki er veitt. Vonast er til að ákvörðun af hálfu heimsminjanefndar UNESCO liggi fyrir um mitt ár 2019. Ísland á þegar tvo staði á heimsminjaskránni, Þingvelli (2004) og Surtsey (2008).

 „Í dag rekum við smiðshöggið á mikla undirbúningsvinnu sem miðar að því að koma Vatnajökulsþjóðgarði á heimsminjaskrá UNESCO. Ég er verulega ánægð með þá vinnu sem hefur átt sér stað og ég er bjartsýn á að þjóðgarðurinn bætist við heimsminjaskrána árið 2019. Það eru mörg tækifæri fólgin í því að efla þjóðgarðinn með þessum hætti, ekki síst fyrir ferðaþjónustuna og byggðirnar í nágrenni garðsins,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í tilkynningunni.

Ljósmynd/Snorri Baldursson

„Friðlýst svæði eru mörg hver segull fyrir ferðamenn á sama tíma og þau tryggja vernd náttúrunnar. Tilnefning Vatnajökulsþjóðgarðs er lóð á þessa vogarskál og afar ánægjulegt skref. Rannsóknir hérlendis sýna að þjóðgarðar skila okkur raunverulegum efnahagslegum ávinningi bæði fyrir Ísland í heild og í heimabyggð. Náttúruverndin er óumdeilanlega ein grunnundirstaða ferðaþjónustunnar. Í þessu samhengi má nefna að stofnun miðhálendisþjóðgarðs er næsta stóra verkefnið okkar,“ er haft eftir Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra, í tilkynningu. 

Þá segir, að formlegur undirbúningur vegna tilnefningarinnar hafi staðið yfir frá árinu 2016 þegar sérstakri verkefnastjórn hafi verið falið að halda utan um og stýra vinnu við tilnefninguna í samræmi við leiðbeiningareglur UNESCO. Verkefnið var unnið í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð og samráð haft við sveitarstjórnir á viðkomandi svæðum. Vinir Vatnajökuls styrktu gerð og undirbúning tilnefningarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert