Þurfum vonandi ekki að reisa múra

Erlendir ferðamenn við Gullfoss. Mynd úr safni.
Erlendir ferðamenn við Gullfoss. Mynd úr safni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir áhyggjuefni hve margir ferðamenn virða að vettugi viðvaranir og lokanir á ferðamannastöðum.

mbl.is birti fyrr í dag mynd­band af hópi ferðamanna sem fór inn á lokað svæði við foss­inn þrátt fyr­ir viðvar­an­ir rútu­bíl­stjóra og skýr­ar merk­ing­ar um lok­un. Hann segir mildi að enginn hafi slasast í dag.

Skarphéðinn telur mikilvægt að reyna að auka fræðslu til ferðamanna og koma þeim í skilning um alvarleika slíkra viðvarana.

Skarphéðinn Berg Steinsson ferðamálastjóri
Skarphéðinn Berg Steinsson ferðamálastjóri mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Það er vonandi að það þurfi ekki að reisa múra í kringum svæðin,“ segir Skarphéðinn og hlær.

Hann útilokar ekki að manna þurfi suma staði til þess að tryggja að ferðamenn fylgi tilmælum. Það fari þó eftir hættunni á hverjum stað fyrir sig.

Neðri foss Gullfoss í klakaböndum.
Neðri foss Gullfoss í klakaböndum. mbl.is/Gísli Sigurðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert