Réttargæslumaður segist vita um tíu brotaþola

Réttargæslumaður drengs sem stuðningsfulltrúi er grunaður um að hafa brotið …
Réttargæslumaður drengs sem stuðningsfulltrúi er grunaður um að hafa brotið gegn kynferðislega segist vita um 10 manns sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hendi mannsins. mbl.is/Hari

Sævar Þór Jónsson, lögmaður, segist vita um tíu einstaklinga sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hendi karlmanns á fimmtugsaldri sem situr nú í gæsluvarðhaldi, grunaður um gróf kynferðisbrot gagnvart ungum dreng. Maðurinn er núverandi starfsmaður Barnaverndar Reykjavíkur.

„Ég veit um allt í allt tíu aðila,“ sagði Sævar Þór í kvöldfréttum Rúv, en hann er réttargæslumaður drengsins sem maðurinn er grunaður um að hafa brotið á.

Líkt og fram hefur komið var kæran lögð fram í ágúst en ekki tekið til umfjöllunar fyrr en í janúar, fimm mánuðum síðar. Sævar Þór hafði þá margít­rekað kær­una og óskað eft­ir upp­lýs­ing­um um stöðu máls­ins hjá lög­reglu. Fyr­ir­spurn­um hans var hins veg­ar aldrei svarað.

„Þetta er náttúrulega ekki fullnægjandi fyrir aðila sem lenda í slíku að menn séu ekki að sinna vinnunni sinni. Það gefur augaleið að þegar börn eiga í hlut eiga menn að grípa til skilvirkari aðgerða en gert var,“ sagði Sævar Þór í viðtali í kvöldfréttum Rúv.

Sævar sagði einnig að hann hafi gert lögreglunni viðvart að maðurinn hefði starfað með börnum við skýrslutöku í desember.

Gæsluvarðhald yfir manninum rennur út á föstudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert