Þorgerður Ingólfsdóttir heiðursborgari Reykjavíkur

Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri og heiðursborgari, ásamt eiginmanni sínum, Knut Ødegård, …
Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri og heiðursborgari, ásamt eiginmanni sínum, Knut Ødegård, og Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. mbl.is/Hari

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sæmdi Þorgerði Ingólfsdóttur, tónlistarkennara og kórstjóra, heiðursborgaranafnbót Reykjavíkurborgar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag.

Borgarstjóri sagði í ræðu sinni að með nafnbótinni vilji Reykjavíkurborg þakka Þorgerði fyrir ómetanlegt og óeigingjarnt starf í þágu borgarinnar og þjóðarinnar allrar á sviði tónlistar og kóramenningar. Þorgerður hætti nýlega sem kór­stjóri Kórs Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð eft­ir fimm­tíu ára starf.

Þorgerður á langan tónlistarferil að baki en hún hóf tónlistarnám sjö ára að aldri. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1963, tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og nam tónvísindi og kórstjórn á meistarastigi við University of Illinois í Bandaríkjunum. Hún hefur einnig stundað tónlistarnám í Austurríki, Bretlandi, Ísrael, Noregi og Sviss og nam auk þess guðfræði um hríð við Háskóla Íslands.

Þorgerður er sjöundi Reykvíkingurinn sem er gerð að heiðursborgara. Séra Bjarni Jónsson hlaut nafnbótina árið 1961, Kristján Sveinsson árið 1975, Vigdís Finnbogadóttir árið 2010, Erró (Guðmundur Guðmundsson) árið 2012, Yoko Ono árið 2013 og Friðrik Ólafsson árið 2015.

Frá athöfninni í Höfða í dag.
Frá athöfninni í Höfða í dag. mbl.is/Hari

Þorgerður stofnaði Kór Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1967 og framhaldskór hans, Hamrahlíðarkórinn, árið 1982. Undir stjórn Þorgerðar hafa kórarnir notið gríðarlegra vinsælda, haldið fjölda tónleika hér heima og erlendis og hlotið margvísleg verðlaun, viðurkenningar og lofsamlega dóma. Ljóst er að kórarnir hafa haft víðtæk áhrif á íslenskt tónlistarlíf, í gegnum tónlistaruppeldi, innblástur og öguð vinnubrögð. Þúsundir ungmenna hafa hlotið tónlistaruppeldi í Hamrahlíðarkórunum og fjöldi landsþekktra tónlistarmanna og hljómsveita hafa haft þar viðkomu.

Þorgerður kenndi við Tónlistarskólann í Reykjavík í tæp þrjátíu ár og var fulltrúi tónlistarmanna í stjórn Bandalags íslenskra listamanna. Hún hefur tekið virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði tónlistar og meðal annars setið í dómnefndum í ýmsum alþjóðlegum tónlistarkeppnum.

Þorgerður Ingólfsdóttir tekur við útnefningunni frá Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra.
Þorgerður Ingólfsdóttir tekur við útnefningunni frá Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra. mbl.is/Hari

Getur ekki hugsað sér lífið án tónlistar

Þorgerður hefur á ferli sínum hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín, en meðal annars var hún gerð að borgarlistamanni Reykjavíkur árið 2012 og ári síðar var hún sæmd heiðursverðlaunum Íslensku tónlistarverðlaunanna. Þá var Þorgerður sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1985 fyrir tónlistarstörf.

Þó svo að Þorgerður sé hætt kórstjórn hefur hún hvergi nærri hætt afskiptum af tónlistarlífinu. Í viðtali í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins í desember sagði hún að hún er og  verði áfram tónlistarmaður á meðan hún dragi andann.

„Hvernig ég út­færi það hér eft­ir kem­ur í ljós. Ég get ekki hugsað mér lífið án tón­list­ar og mun hafa yndi af henni áfram, syngj­andi, stjórn­andi, hlust­andi og njót­andi. Tón­list­in er ein af stoðunum sem hef­ur gert mig að því sem ég er.“

Frétt mbl.is: Þannig syngur vináttan!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert