Unnur Brá verkefnisstjóri stjórnarskrárendurskoðunar

Unnur Brá Konráðsdóttir.
Unnur Brá Konráðsdóttir. mbl.is/Eggert

Forsætisráðherra hefur falið Unni Brá Konráðsdóttur að vera verkefnisstjóri vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Unnur Brá mun hefja störf í forsætisráðuneytinu 1. apríl. Hún verður ráðin sem aðstoðarmaður ríkisstjórnar, sbr. 22. gr. laga um Stjórnarráð Íslands.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir ennfremur, að í áætlun sem forsætisráðherra hafi kynnt um fyrirkomulag stjórnarskrárvinnu næstu árin segi:

„Verkefnisstjórinn hefur heildaryfirsýn yfir verkefnið og tengir saman helstu aðila sem að því koma. Hann er málsvari verkefnisins og leitast við að tryggja skilvirkan framgang þess. Hann starfar í umboði forsætisráðherra, er tengiliður milli ráðherra og sérfræðinganefndar og nýtur aðstoðar skrifstofu löggjafarmála í forsætisráðuneytinu.“

Þá kemur fram, að framangreind sérfræðinganefnd verði sett á laggirnar í samráði þeirra flokka sem fulltrúa eiga á Alþingi.

„Markmiðið er að ná fram áföngum við heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar á þessu kjörtímabili og því næsta. Við munum leita allra leiða til að sjónarmið almennings vísi veginn í þessari vinnu og sem flestir geti tekið þátt í að móta breytingartillögur. Framtíðarsýnin er að stjórnarskráin endurspegli sem best sameiginleg grunngildi þjóðarinnar og renni traustum stoðum undir lýðræðislegt réttarríki þar sem vernd mannréttinda er tryggð,“ er m.a. haft eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í tilkynningunni. 

Unnur Brá lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Hún tók sæti á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 2009 en hafði áður meðal annars starfað sem sveitarstjóri Rangárþings eystra. Unnur Brá gegndi formennsku í allsherjarnefnd 2013-2016 og var forseti Alþingis árið 2017. Nú situr hún á Alþingi sem varaþingmaður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert