Borgin býður út 210 strætóskýli

Grænu skýlin munu mögulega hverfa úr borgarmyndinni í sumar
Grænu skýlin munu mögulega hverfa úr borgarmyndinni í sumar mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á síðasta fundi borgarráðs var samþykkt að heimila umhverfis- og skipulagssviði að óska eftir tilboðum í uppsetningu, rekstur og viðhald á a.m.k. 210 strætóskýlum í borginni.

Fram kemur í bréfi Þorsteins Rúnars Hermannssonar samgöngustjóra að áætlað sé að útboðið fari fram í febrúar og tilboði verði tekið í mars. Útboðið verður auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Í útboðinu er gert ráð fyrir að verktaki bjóði að lágmarki fram 210 skýli við biðstöðvar strætisvagna gegn rétti til auglýsinga í eða á biðskýlum. Verktaki hafi þannig tekjur gegn því að leggja Reykjavíkurborg til skýlin.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert