Avókadó langdýrast í Costco

Mikill verðmunur er á ávöxtum og grænmet eftir verslunum.
Mikill verðmunur er á ávöxtum og grænmet eftir verslunum. mbl.is/Jónas Erlendsson

Mikill verðmunur er ávöxtum og grænmeti hjá stærstu verslunarkeðjum landsins, eða frá 66% upp í 137%. Þetta sýnir ný verðlagskönnun ASÍ sem framkvæmd var í níu stærstu og dreifðustu verslunum og verslunarkeðjum landsins þann 7. febrúar síðastliðinn.

Mesti verðmunurinn var á avókadó en kílóið af því kostaði 1.249 kr. í Costco en 528 kr. í Fjarðarkaupum. Þá var 125% verðmunur á Mangó milli verslana, dýrast var það hjá Víði á 785 kr. kílóið á meðan kílóið var á 349 í Iceland. Verðmunurinn á banönum milli búða var 123% en ódýrastir eru þeir í Bónus á 179 kr. kg en á 399 kr. kg í Hagkaup.

Könnunin leiddi einnig í ljós gríðarlegan verðmun á hreinlætisvörum á milli verslana eða frá 69% upp í 132%. Mestur er verðmunurinn á dömubindum eða 132% og eins er mikill verðmunur á uppþvottavélatöflum eða 131%.

Bónus oftast lægst en Iceland hæst

Í könnuninni var verð á 82 algengum vörum skoðað en 52% meðalverðmunur var á vörunum á milli verslana. Þannig var verðmunur á mjólkurvörum allt frá 10% og upp í 58%, verðmunurinn á kjötvörum og áleggi var frá 10% og upp í 84% og verðmunur á brauðmeti og morgunkorni frá um 30% og upp í 135%. Bónus var oftast með lægsta verðið í könnuninni eða í 41 tilvikum en þar á eftir koma verslanirnar Fjarðarkaup og Víðir, báðar með lægsta verðið í 13 tilvikum og í fjórða sæti var Krónan með lægsta verðið í 11 tilvikum. Iceland var oftast með hæsta verðið eða í 35 tilvikum af 82 á meðan Hagkaup var með hæsta verðið í 26 tilvikum og Víðir í 13 tilvikum.

Mikill verðmunur á kjöti og fiski vekur einnig töluverða athygli. Sem dæmi má nefna að 84% verðmunur var á heilum ferskum kjúklingi milli búða og 68% á frosnum ýsuflökum. Ódýrastur var kjúklingurinn hjá Costco (649 kr. kg) en dýrastur hjá Kjörbúðinni(1197 kr. kg) á meðan frosin ýsuflök voru ódýrust í Krónunni á 1299 kr. kg en dýrust í Kjörbúðinni á 2183 kr. kg. Þá var 75% verðmunur á dýrasta og ódýrasta frosna þorskinum, ódýrastur var hann á 1918 kr. kg í Bónus en dýrastur á 1477 kr. kg í Fjarðarkaupum.

135% verðmunur á Cheerios

Töluverður munur var einnig á brauðmeti og morgunkorni en þrátt fyrir að vera ekki dýrustu vörurnar eru þær oft mikið keyptar. Í þessum vöruflokki var meðalverðmunurinn 61% en mesti verðmunurinn var á Cheeriosi milli búða eða 135%, lægst var kílóverðið í Krónunni eða 615 kr. en hæst í Iceland eða 1446 kr. Þá var 54% verðmunur á Lífskorn brauði með tröllahöfrum og Chia fræjum á milli búða en þar var Bónus með lægsta verðið 369 kr. en Víðir með það hæsta eða 568 kr. Verðið á Kellogs kornfleksi var einnig æði misjafnt en hæsta kílóverðið mátti finna í Víði á 773 kr. en það lægsta í Costco á 450 kr. Sömu sögu var að segja um haframjölið frá Solgryn en þar var verðmunurinn 65%, dýrast var það í Víði á 526 kr. kílóið en ódýrast í Bónus á 320 kr.

Minnst vöruúrval í Costco

Costco var með minnsta vöruúrvalið af öllum búðunum en þar voru einungis 13 vörur til af þeim 82 sem voru kannaðar. Næstminnsta vöruúrvalið mátti finna í Víði en þar vantaði 19 vörur af þeim 82 vörum sem voru kannaðar. Í Víði var verðmerkingum einnig mest ábótavant en í 14 tilfellum voru verðmerkingar ekki til staðar. Í Kjörbúðina vantaði 18 vörur af vörulistanum sem var kannaður. 

Í könnuninni var hilluverð á 82 vörum skráð niður en það er það verð sem neytandinn hefur þegar hann ákveður hvort hann ætli að kaupa viðkomandi vöru. Ef að afsláttur er tekinn fram á hillu er hann tekinn til greina.

Könnunin var framkvæmd á sama tíma í öllum verslunum en þær eru Bónus við Hallveigarstíg, Nettó í Mjódd, Krónan niðri á Granda, Hagkaup í Skeifunni, Iceland í Engihjalla, Fjarðarkaup, Víðir Sólvallagötu, Costco og Kjörbúðin Garði.  Í könnuninni er einungis gerður samanburður á verði en ekkert mat er lagt á gæði eða þjónustu viðkomandi verslana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert