Innbrot í Austurborginni

mbl.is/Hjörtur

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um innbrot á heimili í Austurborginni um níuleytið í gærkvöldi. Hafði verið farið inn um glugga á húsinu, en ekki er vitað hverju var stolið að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Þá var ofurölvi maður handtekinn á Hlemmi á tíunda tímanum í gærkvöldi, þar sem hann var til vandræða. Var hann vistaður í fangageymslu lögreglu á meðan ástand hans lagast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert