Þjófar á þremur stöðum

mbl.is/Hjörtur

Þrjú þjófnaðarmál hafa verið kærð til lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum samkvæmt fréttatilkynningu.

Þannig var vörum að andvirði tæplega 60 þúsund króna stolið úr versluninni Ormsson í Keflavík. Einnig var bakpoka, sem innihélt fartölvu og fleiri muni samtals að verðmæti um 375 þúsund króna, stolið úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Loks var brotist inn í vinnuskúr í Keflavík og þaðan stolið tveimur borvélum og fleiri munum.

Málin eru í rannsókn hjá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert