Fangi lést á Kvíabryggju í gær

Kvíabryggja.
Kvíabryggja. mbl.is/Gunnar Kristjánsson

Fangi á Kvíabryggju lést í gær en Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir dauðsfallið í samtali við Fréttablaðið, sem greindi frá málinu. Þar er því haldið fram að fanginn hafi svipt sig lífi.

Páll segist í samtali við Vísi ekki geta staðfest að fanginn hafi svipt sig lífi og segir málið nú í höndum lögreglu. Greint er frá því að lík fangans hafi fundist í fjárhúsinu við Kvíabryggju.

Ekki náðist í Pál við vinnslu fréttarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert