Heppinn miðaeigandi fékk 25 milljónir

Heild­ar­upp­hæð vinn­inga í út­drætti kvölds­ins nam rúm­um 140 milljónum.
Heild­ar­upp­hæð vinn­inga í út­drætti kvölds­ins nam rúm­um 140 milljónum. mbl.is/Golli

Einn heppinn miðaeigandi fékk fimmfaldan fyrsta vinning í aðalútdrætti kvöldsins hjá Happdrætti Háskóla Íslands og hlýtur því 25 milljónir króna í vinning. Þá gekk Milljónaveltan út og fær annar heppinn miðaeigandi 20 milljónir króna í sinn hlut.

„Sprengidagur stóð svo sannarlega undir nafni þegar dregið var í Happdrætti Háskóla Íslands því rúmar 140 milljónir verða greiddar út til miðahafa eftir útdrátt kvöldsins,“ segir Úlfar Gauti Haraldsson, rekstrarstjóri flokkahappdrættis hjá Happdrætti Háskóla Íslands.

Tveir heppnir miðaeigendur fengu einfaldan fyrsta vinning og hlýtur hvor um sig 5 milljónir króna. Þá fá sex vinningshafar 1 milljón króna hver og ellefu 500 þúsund krónur hver. Alls fengu 3.136 miðaeigendur vinning í útdrættinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert