Landsmenn beðnir um að moka og salta við hús sín

Pósturinn vill því biðla til landsmanna að vera duglegir að …
Pósturinn vill því biðla til landsmanna að vera duglegir að moka snjó frá innkeyrslum og framan við hús sín. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Mikil snjókoma víðs vegar um landið síðustu daga hefur haft áhrif á störf bréfbera og bílstjóra Póstsins og tafið fyrir störfum þeirra. Pósturinn vill því biðla til landsmanna að vera duglegir að moka snjó frá innkeyrslum og framan við hús sín svo að starfsmenn Póstsins geti komið sendingum sínum til skila bæði fljótt og örugglega.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum.

Starfsmenn Póstsins hafa meiðst

Fram kemur, að stórir snjóskaflar hindri ekki aðeins för bíla heldur geri þeir einnig bréfberum erfiðara að komast að póstkössum og bréfalúgum húsa. „Aðstæður sem geta skapast í svona tíðarfari hafa reynst starfsmönnum Póstsins hættulegar og dæmi eru um að þeir hafi meiðst við að athafna sig í hálku og lausum snjó.“

Pósturinn bendir einnig á, að það séu ekki aðeins starfsmenn Póstsins sem eru gangandi innan um skaflana.

„Sérstaklega getur verið hættulegt þegar skyggni er slæmt og gangandi vegfarendur þurfa að sveigja af illfærum gangstéttum og út á götu. Því er gott að hafa í huga þegar bakkað er úr innkeyrslum að fólk á gangi getur leynst þar sem það er venjulega ekki að finna,“ segir enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert