Þriggja bíla árekstur á Bústaðavegi

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Þriggja bíla árekstur varð á Bústaðaveginum um áttaleytið í morgun og er öll umferð þar um nú stopp. Að sögn slökkviliðsins verður farið með tvo á Landspítalann til aðhlynningar vegna minniháttar meiðsla.

Þá varð árekstur á Hvammabraut í Hafnarfirði rétt fyrir klukkan átta og þurfti að flytja einn á Landspítalann til aðhlynningar. Ekki var þó talið að meiðsl hans væru alvarleg.

Búast má við lélegu skyggni á höfuðborgarsvæðinu þennan morguninn vegna ofankomu og eru ökumenn því hvattir til að fara varlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert