Tveir slasaðir eftir árekstur hestakerru

Frá slysstað í dag.
Frá slysstað í dag. Ljósmynd/Brunavarnir Árnessýslu

Fjórir voru fluttir á sjúkrahús eftir árekstur á Suðurlandsvegi rétt austan við Selfoss á sjötta tímanum í dag. Hestakerra mun hafa losnað frá ökutæki og hafnaði hún framan á smárútu sem kom úr gagnstæðri átt.

Tveir eru taldir slasaðir en ekki er vitað nánar um ástand þeirra að svo stöddu. Vegurinn var lokaður í um tvær klukkustundir í kjölfar slyssins, en hefur nú verið opnaður.

Í upphaflegri frétt mbl.is af slysinu kom fram að um bílveltu hefði verið að ræða og voru þær upplýsingar samkvæmt fyrstu tilkynningum sem bárust um slysið.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert