Laun hjá ríkinu hækka um 1,3%

Skrifað var undir samkomulag um launaþróunartryggingu í desember.
Skrifað var undir samkomulag um launaþróunartryggingu í desember. Ljósmynd/ Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Laun félagsmanna aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríkinu verða hækkuð um 1,3% að meðaltali til að bæta þeim upp launaskrið á almennum vinnumarkaði. Hækkunin er afturvirk frá 1. janúar 2017 og ætti að koma til framkvæmdar um næstu mánaðarmót hjá félagsmönnum flestra aðildarfélaga.

Fram kemur á vef BSRB, að samkomulag um launaþróunartryggingu opinberra starfsmanna, sem sem séu félagar í aðildarfélögum BSRB, hafi verið undirritað  í desember. Stjórn bandalagsins ákvað svo á fundi sínum 2. febrúar að láta hverju og einu félagi eftir að semja um útfærslu við ríkið og hafa þau nú velflest gengið frá slíku samkomulagi.

Laun félagsmanna hjá sveitarfélögum taka ekki breytingum

Þá segir, að laun félagsmanna BSRB sem starfa hjá sveitarfélögum taki ekki breytingum að þessu sinni. Ástæðan sé sú að laun starfsmanna sveitarfélaga hafi hækkað meira en laun á almennum vinnumarkaði á árunum 2013 til 2016. Launaþróunin verði mæld áfram og leiðrétt vegna áranna 2017 og 2018, ef tilefni reynist til, þegar þær tölur liggi fyrir.

Tryggi að opinberir starfsmenn sitji ekki eftir

„Markmiðið með launaþróunartryggingunni er að tryggja að opinberir starfsmenn sitji ekki eftir á meðan launaskrið hækkar meðallaunin á almennum vinnumarkaði. Í rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá árinu 2015 er kveðið á um að þeim sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum verði bætt það launaskrið sem verður á almenna vinnumarkaðinum umfram það sem kann að verða á opinbera markaðinum. Aðild að samkomulaginu eiga íslenska ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Alþýðusamband Íslands, BSRB og Samtök atvinnulífsins,“ segir í tilkynningu BSRB.

Stór áfangi

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir í tilkynningunni, að þetta sé stór áfangi fyrir félagsmenn og jákvætt að þetta sé nú í höfn.

Hún segir ennfremur, að ávæðinu um launaþróunartryggingu sé ætlað að tryggja félagsmönnum að laun þeirra muni þróast á sama hátt og laun á almennum vinnumarkaði. Nú hækki launin hjá hluta félagsmanna eftir fyrstu mælingu en svo verði gerðar tvær mælingar til viðbótar vegna áranna 2017 og 2018 sem geta haft áhrif á launin.

Þá kemur fram, að við útreikning á launaskriði sé litið til þróunar á almenna markaðinum annars vegar og hjá félögum í BSRB hins vegar á tímabilinu frá nóvember 2013 til nóvember 2016.

„Niðurstöður útreikninga fyrir þetta tímabil sýna að hækka þarf laun félaga í aðildarfélögum BSRB sem starfa hjá ríkinu um að meðaltali 1,3 prósent. Hækkunin er afturvirk og gildir frá 1. janúar 2017. Laun félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands sem starfa hjá ríkinu munu hækka um að meðaltali 1,6 prósent af sömu ástæðu,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert