Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á tíunda tímanum í gærkvöldi mann sem var í annarlegu ástandi í Lækjargötu. Hafði maðurinn ráðist á erlenda ferðamenn og sparkað í þá.
Segir í dagbók lögreglu að efni, sem talin séu fíkniefni, hafi fundist hjá manninum eftir að hann var handtekinn. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu sökum ástands.
Ferðamennirnir sögðust ekki ætla að fylgja málinu eftir, þar sem þeir eiga flug í dag.
Þá var annar maður í annarlegu ástandi handtekinn í Lækjargötu um eittleytið í nótt. Maðurinn vildi ekki segja lögreglu deili á sér með því að gefa upp nafn eða kennitölu og var hann því vistaður í fangageymslu sökum ástands síns.