6010 félagar eru í dag skráðir í Vinstrihreyfinguna - grænt framboð en það er í fyrsta skipti í nítján ára sögu VG sem fjöldi skráðra félaga fer yfir sex þúsund.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá VG.
Þar kemur fram að félögunum hafi fjölgað jafnt og þétt frá því í desember en fyrir þann tíma hafði orðið nokkur fækkun frá þingkosningunum í lok október.
„Síðustu vikurnar hafa innskráningar tekið enn meiri kipp, eins og jafnan gerist þegar kosið er um efstu sæti á listum,“ segir í tilkynningunni. Rafræn kosning um fimm efstu sæti VG fyrir borgarstjórnakosningarnar í vor fer fram 24. febrúar.